
News Tíkur Rakkar Hvolpar Ræktunar Standard Samband Tenglar Um mig
Umhverfisþjálfun hvolpanna
|
Það er mér mikilvægt
að undirbúa hvolpana mína vel fyrir framtíð þeirra með nýjum
fjölskyldum.
Þegar hvolparnir eru 3ja vikna færi ég þá úr "gotherberginu" og inní stofuna á heimilinu þar sem þeir verða fyrir ýmiskonar áreiti af umhverfishljóðum heimilisins, sjónvarpi, ryksugu og heimilisfólki, ásamt gestum og gangandi. Hvolparnir eru fljótir að finna leikfélaga í barnabörnunum sem vita ekkert skemmtilegra en að knúsa þá og kjassa. Með börnunun spreyta hvolparnir sig á ýmiskonar þrautum m.a. barnaleikfanginu "rörinu" sem þeir eru mis-kjarkaðir að fara í gegnum í byrjun :) Frá 3ja vikna aldri byrja ég líka á því að "bíl-venja" hvolpana, fer með þá í stutta bíltúra, helst daglega eða þá annan hvern dag. Það verður trúlega stór partur af þeirra tilveru, í framtíðinni, að ferðast í bíl með sinni nýju fjölskyldu og þægilegra fyrir alla aðila ef þeir njóta þess, í stað þess að verða bílveikir :( Í einum og einum bíltúr er farið með hvolpana í heimsóknir þar sem þeir kynnast nýju umhverfi og enn fleira fólki :) og kemur fyrir að ég taki þá með mér í leikskólann að sækja barna börnin. Stuttum bíltúrum held ég síðan við, alveg þar til þeir fara að heiman. |
|