
Fréttir Tíkur Rakkar Hvolpar Ræktunar-Standard Samband Tenglar Um mig
Um mig
|
Fyrst þegar ég sá chinese crested hund, varð ég ekki neitt sérstaklega hrifin, mér fannst hann vera óvenjulegur svona nakin og frekar ljótur. Ég vissi ekki þá, að eftir örfá ár átti ég eftir að kolfalla fyrir þessari tegund ! Ég held, að yfirleitt þegar fólk tjáir það að þeim finnist crested hundar ljótir, þá sé það vegna þess að það er ekki vant því að umgangast nakta hunda. Ég byrjaði á því að eignast yndislega chihuahua tík, og einu sinni þegar ég var með hana hjá dýralækninum, sá ég unga laglega konu með nokkra crested hunda í bandi (Sida, sem var fyrst til þess að flytja inn þessa tegund, svo ég viti til), og á þessari stundu féll ég gersamlega fyrir þessum sérstöku hundum. Þarna sá ég hvað þeir voru með listrænt útlit og tígulegir í alla staði. Ég byrjaði, á því að leita mér allra upplýsinga sem ég komst yfir, um tegundina, og sá að þeir voru ekki bara glæsilegir í útliti heldur voru líka með sérstaklega skemmtilegan og ljúfan persónuleika. Áhugi minn óx, og endanlega ákvað ég að ég skyldi verða mér út um einn eða fleiri af þessari tegund, og jafnvel fara út í ræktun á þessum einstöku hundum. Ég áttaði mig á ábyrgð minni við val á fyrstu hundunum mínum, vegna smæðar á þessum stofni hér á landi, varð ég að finna verulega góða hunda til að byggja mína ræktun á. Það er búin að vera mikil vinna fólgin í því að finna "bestu" hundana til þess að byrja mína ræktun með. Það tók mig dágóðan tíma að finna fyrsta hundinn minn, Irwin, þökk sé Alexöndru frá ræktuninni "Rus Crimson Empaer", fyrir þennan fallega hund sem ég fékk frá henni og margfaldar þakkir á hún skilið fyrir alla þá þolinmæði og hjálp sem hún er búin að veita mér við fræðslu og umönnun á tegundinni, ásamt því að vera mér til aðstoðar við leit á fyrstu tíkinni minni. Einning vil ég þakka öllum öðrum frábærum ræktendum sem hafa leiðbeint mér og aðstoðað, og treyst mér fyrir hvolpunum sínum. Aldís.
|